humm

Posted in on 24,09,08 by maggalooo

http://eskimoi81.blog.is/blog/eskimoi81/

Vúppey

Posted in on 01,07,08 by maggalooo

Nokkrar línur í dag svona af því mar er í fríi í dag…

‘Eg er að fara í sumarfrí eftir 2 vikur … vúppey

Elísabet og Emil sonur hennar ætla kanski að vera eitthvað hjá okkur í sumar

‘i dag er ég komin 14 vikur

Hnerraði um daginn og litla krílið lét finna fyrir sér í fyrsta skipti, held hann hafi verið sofandi og hann vaknað í jarðskjálfta.

Systir mín ætlar að koma í júlí get ekki beðið :)

Fór til tannsa í gær það þurfti að taka jaxl

Og svo í dag er ég heima af því það kom sýking í kjálka og kinnbein…

Er heima og lifi á sýklalyfjum ab mjólk og parataps…en anywho hver fann upp parataps og sagði að það væru verkjalyf??? Þegar ég tek inn verkjalyf þá vil ég vera stoned ekki eins og ég hafi fengið mér einn bjór …

Ef ég væri

Posted in on 17,04,08 by maggalooo

Ef ég væri karlmaður þá þyrfti ég eiginlega aldrei…

Að vaska upp minnst 2 svar á dag

þvo þvott minnst 2 svar á dag

brjóta saman 2 svar á dag

elda matinn á hverju kvöldi

fara að versla

úbúa innkaupalista

drösslast með það á 3ju hæð

ryksuga þurrka af skúra og þrífa bað einu sinni í viku

svæfa og baða börnin

sækja börnin

vinna líka

en ef ég væri karlmaður þá gæti ég…

komið heim úr vinnu og henst í sófann

spurt hvort peysan sé hrein

og spurt hvar hún sé

spurt hvað sé í matinn

spurt hvort ég keypti nammi í bónus í dag

kvartað yfir að það sé hundleiðinlegt að labba upp á 3ju hæð, með ekki neitt í fanginu

henst í sófann eftir matinn

staðið upp úr sófanum og kysst börnin góða nótt

legið í sófanum og sagt „komdu og smjattaðu aðeins á kvekendinu“ !!!

farið sæll að sofa

svo mar spyr………er hægt að græða „smjattpattann“ aftur á eftir meira en sólarhring

 

Kjaftafólk …..

Posted in on 05,04,08 by maggalooo

Jamm mig langar aðeins að leiðréttta ýmsar sögusagnir og hneyksli á fólki í minn garð og hvar er best að gera það nema bara að blogga um það hehe….

 Það varðar það að fólk heldur og segir að ég hafi verið óvenju fljót að jafna mig þegar Davíð lést og hafi bara hoppað í fangið á næsta manni en það var ekki þannig ég og Davíð skildum fyrir 1 og hálfu ári síðan og það eru 8 mán síðan hann lést so you do the math pípól … þoli ekki þegar fólk talar um hluti sem það hefur ekkert vit á né þekkir til fólksins sem það er að tala um ….

ég ætla svosum ekkert að tjá mig um okkar samband en þeir sem þekkja mig vel og vita til mín,og þau sem þekktu okkur saman vita alveg hvernig málin stóðu, það er bara hundleiðinlegt að fá svona á sig …. hugsið smá áður en þið talið út í loftið…

‘island í dag…

Posted in on 30,03,08 by maggalooo

Og svo 18 árum seinna bloggaði Magga…

nokkrir punktar um það hvernig er að búa á Islandi um þessar mundir

v  Það er ekki í boði fyrir ungt fólk sem er að koma sér undir fótum að kaupa sína fyrstu íbúð nema þú getir fengið einhvern sem getur veðsett allar sínar 40 eignir fyrir þig afþví þú ætlar að kaupa 80fm íbúð.

v  Réttarkerfið býður uppá á að þú getir gert viðbjóðslega hluti, svívirt og eyðilagt líf einnar manneskju og fengið engan dóm ,en passaðu að það sé enginn á bak við hurðina í skólanum gætir þurft að punga út 10 milljónum,

v  Krakkinn þinn er 3ja ára og úti í garði að leika sér þú fylgist með út um gluggann ….neibb getur átt hættu á að fá barnavernd á þig, krakkar mega víst ekki leika sér úti lengur nema vera í taumi eða vera með gsm á sér, svo á að fara setja gprs á krakkana líka.

v  ‚Eg fór í Bónus og BT áðan það er svona 1km heima frá mér , ég þurfti að setja 4500kr á bílinn, hann var tómur þegar ég kom til baka.

v  ‚Eg á 2 börn og þar af leiðandi fara öll mín laun í að kaupa bara mjólk og jógúrt smjör og ost.  Já mér finnst hálf sorglegt að búa á íslandi þessa dagana.

En fréttir af okkur svo sem eru bara þær same as usual vinnan, sofa, éta ,og skíta bara.

það þarf að brjóta báðar fætur á mér upp í næsta eða þarnæsta mán. óska eftir vinum til að halda mér félagsskað í 2-3 mán eftir á. áhugasamir hafið samband í gegnum comment eða hringið bara í mig hehe  

 Later pípól…

Bad karma

Posted in on 12,02,08 by maggalooo

OMG hvað þessi mánuður er búinn að vera eitthvað glataður langar að leggjast í dvala þar til  hann er búinn…OK byrjum á byrjun mánaðarins…fórum upp í fjall til að prufukeyra sleðann eftir að nýbúið væri að setja nýja dempara í hann …fengum smá smakk í hálftíma þá fór mótorinn bræddi úr sér þá tók við margra tíma aðgerð að ná honum úr jess tókst loks, varð að gera þetta sem fyrst því að það var mót síðustu helgi við höfðum semsagt 2 vikur til stefnu að laga eitt stykki mótor panta að utan og allt sem því fylgir. Guðjón hringir í kall sem átti að sjá um það hann segist ætla að panta varahluti ok flott engar áhyggjur þar… hringjum í kallinn sem átti að laga hann.. neibs hann er erlendis kemur á laugardag viku fyrir keppni ..við jæja ok hlýtur að reddast.. jæja miðvikudagur kominn 3 dagar í keppni og mótorinn á akureyri..hann hringir í kallinn sem átti að laga hann en neibs hann kemur þá ekki á Akureyri fyrr en á fimmtudag en kom bara til landsins á laugardegi jess enn meira stress hvort nægur tími væri að laga hann… Guðjón hringir í kallinn sem átti að panta eeen nei hann var sko ekki búinn að því þá byrjaði stressið aftur á miðvikudegi fá stimpla hér, hedd þarna, og legur þarna, úr hinum og þessum sleðum sílendir átti að fara með rútu frá reykjavík á fimmtudag og rútan lagði af stað en varð að stoppa í varmahlíð vegna veðurs…jesssss enn meira stress loks lagði rútan af stað aftur um hádegi á föstudegi sílendir alveg að koma og við að reyna að koma okkur af stað á undan veðrinu sem átti að koma seinna um kvöldið stressað af stað brunað norður með sleðann í eftirdragi brjálað veður og hálka og skafrenningur á leiðinni komumst loks á Akureyri brunað með sleðann uppá verkstæði á Akureyri um 5 á föstudegi Guðjón hendist í það að koma öllu í og er til 11 um kvöldið að þessu loks búið að koma mótornum í á síðustu stundu ekki náðist að prufukeyra sleðann fyrir mót samt…jæja svo byrjaði að mígrigna á Akureyri og brautin horfin þetta varð aftur að mótorkross braut kallarnir hamast við að moka snjó hér og þar í kring til að búa til braut aftur ok tókst fyrir rest fjúff …ollræt þetta hafðist loks. Eftir keppni kemur gaurinn sem lagaði mótorinn og segir Guðjóni að hann vildi nú ekkert að vera stressa hann meira fyrir keppni en tjáði honum síðan að allar legur í kúplingu væru farnar ójá enn meiri útgjöld þar en ákváðum að hann tæki ekki þátt á ‘Olafsfirði myndum bara taka þessu með ró að laga þetta og panta og svol thank god … Sunnudagur á leið heim byrjaði rólega svusum lögðum af stað austur Guðjón lét mig taka við á Laugum því hann var alveg búinn eftir laugardagskvölið eftir keppni audda ég bara keyri það er frekar mikill vindur en þó autt.. svo kemur allt í einu þessi svaka vindkviða og skafrenningur með því ég hægi á mér niður í 60 joja birtir aðeins pomm bara svell undir okkur og ég á 60 á leið í krappa beygju svo kemur önnur vindkviða sem síðan tók svo í kerruna að hún bara skautaði með okkur í hring á veginum joja ekkert hægt að gera nema bara bíða og sjá til hvar bíllinn endar loks kom skellurinn komin útaf nánast á hlið og sleðinn kastaðist af kerrunni lá þarna marga metra frá okkur á hliðinni sem betur fer skemmdist ekki mikið en þó nokkuð sést á kerrunni og smá bunga á bílnum.. við út í fárviðrið að reyna koma sleðanum og kerrunni aftur uppá götu og losa bílinn hurru pajero kall í jakkafötum kemur og stoppar hjá okkur við spyrjum hvort hann geti hjálpað okkur hurru hann segir bara nei og keyrir í burtu !!!!!!!!! andsk kallar í jakkafötum…loks þegar puttarnir voru orðnir frosnir á okkur tókst okkur að mixa beislin aftur og binda sleðann nokkurnveginn aftur á….lögð af stað heim aftur í rólegheitum bara svo kom möðrudalsheiði og þá tók gamanið við aftur kerran byrjaði aftur að sveiflast á veginum en sem betur fer tókst guðjón að rétta hann af . Komin loks heim skila dótinu heim og slaka aðeins á… við fórum ekki á okkar bíl hann er ekki með krók en anywho Guðjón týndi sínum lyklum fyrir þó nokkru síðan joja ekkert mál ég var með lykla neeiii mér tókst að tína mínum einhversstaðar ég hringdi þá í Heklu og bið þá að smíða nýja lykla og enn meiri útgjöld þar jesss…auðkennis lykillinn minn var á bíllyklunum svo ég varð að fara í morgun og fá nýjan auk þess að hækka heimildina á visa kortinu…þeir tjá mér að lyklarnir verði tilbúnir á miðvikudag ok flott ég bara borga það svo komu ex tengdó áðan og byrja að segja þeim alla söguna af lyklunum og bla bla bla þá segja þau mér að kona hefði komið ti þeirra með lykla en þau áttu þá nottla ekki en þau segja mér hver það var ég hringi beint í hana og thank god þetta voru mínir lyklar ég hafði misst þá í ölu mínu stressi að koma okkur norður þurfti nebbla að hoppa inn hjá þeim áður en við lögðum af stað…og ég hringdi beint suður og bað um að hætta við lyklana þeir hafi fundist en joja næsta vandamál ég var búin að borga með visa og það er eitthvað mál að skila svol en ég bara nenni ei að stressa mig yfir því …svo síðasta miðvikudag fór ég í eftirlit með fæturna á mér fór í myndatöku á föstudegi og svo kom í ljós að það þarf að brjóta upp báða fæturna á mér í næsta mán auk þess að ég væri með einvherja beinhimnubólgu hvað sem það nú er hafði ekki tíma til að fá útskýringu á því því ég var að reyna drífa mig á Akureyri…þá kemur það nottla að ég þarf að hætta í fótboltanum og má ekki hlaupa næsta hálfa árið oooooooojjjjjjjjj gæti grenjað auk þess að ég þarf að vera vafinn um báða fætur í 3-4 vikur eftir aðgerð og gera ekki neitt sem er ekki beint minn stíll….sooooooooooooo mig langar helst að leggjast í dvala fram á haust… Er þetta bad karma? Ég held að ég hafi aldrei verið vond persóna … I really really need a big hug…anyone?

Jóla hvað…..

Posted in on 23,12,07 by maggalooo

Vá 2 dagar til jóla er ekki að fatta það eitthvað. Er í voða litlu jólaskapi bara tók það út í byrjun nóvember held ég En ætla bara að hafa þetta stutt núna ligg bara uppí rúmi með 2 nammiskálar and trying too put sum weight hehe.En síðasta helgi gekk svo bara vel semsagt tískusýningin Guðrún og Eva eru nottla bara snillar með öllu algjörar hetjur takk stelpur þetta var æði og gaman að geta hjálpað J var bara spennandi og gaman að prófa þetta enda líka nett spennufall eftir á hehe fórum svo reyndar bara heim fyrir 2 var alveg gjörsamlega búin eftir allt stússið yfir daginn. En ætla að láta eitt lítið ljóð fylgja með núna fyrir alla sem sakna ástvina sinna yfir hátíðirnar…..  

Minningin varir mild og hlý

Mýkir hún trega sárið

Minning er gull sem geymist ný

Gefur þótt líði árin. 

Gleðileg jól allir saman og óska ykkur öllum  farsældar á nýju áriJ

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.