Ef ég væri

Ef ég væri karlmaður þá þyrfti ég eiginlega aldrei…

Að vaska upp minnst 2 svar á dag

þvo þvott minnst 2 svar á dag

brjóta saman 2 svar á dag

elda matinn á hverju kvöldi

fara að versla

úbúa innkaupalista

drösslast með það á 3ju hæð

ryksuga þurrka af skúra og þrífa bað einu sinni í viku

svæfa og baða börnin

sækja börnin

vinna líka

en ef ég væri karlmaður þá gæti ég…

komið heim úr vinnu og henst í sófann

spurt hvort peysan sé hrein

og spurt hvar hún sé

spurt hvað sé í matinn

spurt hvort ég keypti nammi í bónus í dag

kvartað yfir að það sé hundleiðinlegt að labba upp á 3ju hæð, með ekki neitt í fanginu

henst í sófann eftir matinn

staðið upp úr sófanum og kysst börnin góða nótt

legið í sófanum og sagt „komdu og smjattaðu aðeins á kvekendinu“ !!!

farið sæll að sofa

svo mar spyr………er hægt að græða „smjattpattann“ aftur á eftir meira en sólarhring

 

2 Responses to “Ef ég væri”

  1. Alma Says:

    Jahérna…maður var næstum búinn að gefa þig upp á bátinn…en svo þegar maður svo kíkir eru allt í einu komin bara nokkur blogg..nóg að lesa :)

    Gaman að kíkja á þig…þegar það eru nýjar færslur hehe

    Vona allt gangi vel hjá ykkur :)

    Kv. Alma Gylfa

  2. Vá er mín í stuði, en þetta er alveg satt, það er búið að sanna það að konur vinna að jafnaði 13 mánuði á ári en karlmenn bara 12 mánuði, því við erum alltaf að frá kl 7 – miðnættis

Leave a Reply