Akward moments hjá möggulooo
G´Day G´Day allt gott að frétta í dag…hingað til allavega…helgin var bara mjög róleg og góð að mínu, fórum á Neskaupsstað á sunnudaginn þar sem við gerðum okkur dagamun með Maríu Lind og Guðjóni spúsanum hennar , var mjög svo gaman að hitta þau aftur en eins og María Lind sagði þá hafði ég mjög svo góða afsökun að fara ekki oft niður á firði þar sem að það vantar vél í bílinn minn…tek það sem gilda afsökun…en nú er hafin yfir stór leit að vél í blessaðan Mánudagsbílinn minn margir kannast eflaust við það að eiga svoleiðis bíl giska ég á…alltaf gaman að þeim, láta mann allavega hafa fyrir þessum stuttum ferðum sem maður þarf að fara að geta sko aldeilis komið manni sjálfum í gírinn á morgnan sérstaklega þar sem tíminn er naumur stundum…síðast þegar ég nennti að keyra hann þá var það upp Breiðholtsbrautina og fílingurinn var eins og að vera í flugvél að taka á loft…það var í svona hudraðasta skipti sem pústið fór og ég er ekki að ýkja þegar ég segi að það var EKKI hægt að tala saman í bílnum nema að öskra!!! en nóg um bíldruslan mína frá Germany sem á að vera eitthvað voða gott en er að mínu mati bara crap!!!Ætla að snúa mér að “okvard” moments …mjög svo gaman að lenda í þeim…ég á nú nokkur moment þar sem ég er svona álíka heppin og Bridget Jones vinkona mín ætla bara að nefna nokkur dæmi… var eitthvað að hugsa um svona lagað í morgun nebbla og langar að deila alþjóð með reynlsu minni…
Strike nr 1..Bjó út í Norge 98 í Eidet Böde upp í norður Noregi og var að vinna þar með 9 öðrum íslendingum erum bara mætt þarna enn annan vinnumorgunin eins og gegnur og gerist er bara að rabba við norsku mjaltakvinnene þegar að gaur kemur og er eitthvað að tala við okkur svo þegar gaurinn er farinn tek ég til máls og segi “þetta er nú eitthvað alljótasta kvikindi sem ég hef séð um ævi mína, karlgreyið að vera svona óheppinn” hurru…önnur mjaltastelpan lítur á mig eitthvað voða asnalega og ég skildi það ekki fyrr en það kom að kaffinu að hún labbar með honum út og ég spyr hina “hvað er hún að fara með honum”? og hún tjáir mig um það að þetta sé nú bara unnusti hennar!!! Vildi ég ætti eitt stykki haglara þarna…ýminduð ykkur hvað það var gaman að vinna með henni restina af deginum…
Strike nr 2…sama dag…er enn að vinna með mjaltakonunum og komið fram yfir hádegi núna…Davíð er eitthvað að rífast við gamlan karl þarna á lyftara og eitthvað svaka drama í gangi ég segi við hina stelpuna ( þessa single ) að þessi gamli kall ætti nú ekkert að vera að rífa kjaft og bara fara á elliheimilið hann hefði ekki vit á einu né neinu…væri bara heimskur…hurru…”Pabbi” kallar hún að gamla manninum … vildi núna að ég ætti flugskeyti sem ég sæti ofaná á leið til helvítis bara …
Strike nr 3…enn sama dag að lokinni vinna sem betur fer…ég og Stína fína fórum labbandi í matverslunarleiðangur í Supermarketið búnar að versla allt inn og versluðum aðeins meir en áttum að gera stóðum með sex poka og vorum að bölva yfir því að við þyrftum að labba heim með allt draslið…þá kemur indæll eldri maður og býðst til að skutla okkur heim og Stína var ekki lengi að segja já…kallin hjálpar til við að setja pokana í skottið , Stína sest frammí og ég afturí…Stína er að spjalla við kallinn audda á ensku…ég sagði svo við Stínu að mér litist ekkert á þennan karl og sagði “hann á örugglega eftir að keyra upp í skóg , nauðga okkur og drepa og ræna matnum” Stína hlær eitthvað að því og poppar svo upp stóru spurningunni við kallinn” Og vð hvað vinnur þú svo”? hann svara “‘Eg er ISLENSKU kennari hér í skólanum”!!! My god bað þess svo innilega til Guðs að láta eina stóra góða eldingu lausta niður núna strax bara…en kallin hló nú bara að mér fyrir þessa “fávisku” mína og sagðist ekkert vera sár…ég hló nú ekkert svo mikið…hann hafði ekki hugmynd um hvernig dagurinn minn var búinn að vera en var loks fegin að komast bara uppí íbúð og ekki fara út fyrir hússins dyr meira þennan dag …og reyndi að víra saman á mér kjaftinn…Joja
Strike nr 4…Barcelona…var úti að borða með fyrirtæki manns míns flottur matur og endalaust af víni…skemmtistaðirnir þræddir alveg í röðum og enn meira drukkið var orðin svo skrautleg að ég var farin að dansa upp á barnum með dansmeyjunum sem prýða barinn á Barcelona…barþjónarnir fannst það svo fyndið að þeir gáfu mér nú rauða rós í staðinn, engum hafði dottið þetta í hug áður fyrr..þeir hugsuðu örugglega að “hér væri á ferðinni ‘Islendingur eins og hann gerist bestur í glasi ” sem var nú ábyggilega rétt hjá þeim…jæja djammið búið og erum að bíða eftir leigubíl en Magga litla var nú orðin svo skrautleg að einhverveginn náði hún að lenda í slagsmálum vð eina Senjórítuna…ekki sást nú mikið á mér en stelpugreyið gerði sér ferð upp á spítala…hún var hvort eð er á leið þangað því hún var með skurð á enninu fyrir slagmálin svo hún sló sér bara tvær flugur í einu höggi…það er ekki það neyðarlega …daginn eftir þá erum við í mollinu og hittum þar mágkonu mína og mann hennar þar…ég var í hlýrabol með sígarettu brunagöt á handleggjunum…úfið hár…og öll blá og marin víða á líkamanum…mágkona mín spyr nú hvað hefði eiginlega komið fyrir og Davíð svaraði því , því að ég hafði ekki grænan grun um hvað hefði gerst um kvöldið áður , vaknaði bara svona og mann ekki boffs…ekki leið mér eins og fyrirmyndamóður þann daginn að hitta mágkonu mína í svona skemmtilega annarlegu ástandi…en svona mín vegna þá bað ég þau um að segja tengdaforldrum mínum EKKI frá þessu og varð að ósk minni…vil taka það fram að þetta voru fyrstu og vonandi einu slagmálin mín í gegnum ævina…
Strike nr 5…Enn á Barcelona …erum í lobbíinu á hótelinu þegar að lítill hvítur feitur maður labbar inn með íturvaxna þeldökka konu uppá arminn og eru að labba framhjá okkur þegar ég segi “noh einn búinn að fjárfesta í einni hóru og boðið henni til Spánar” sagði það því klæðaburður hennar minnti einna helst á að hún væri frá Harlem…þá var pikkað í mig og gefið merki um að ég ætti ekki að segja þetta svona hátt mér var skýrt frá því seinna að þetta væri fólk frá ‘Islandi…er alveg viss um að þau heyrðu þetta því konan horfði eitthvað svo asnalega á mig…en ég var ekkert að spá í því…ég var alveg viss um að ég myndi nú aldrei sjá þetta fólk aftur á ævinni…kanski var ég þá aðeins of fljót á mér þar því þegar við erum svo að fara aftur heim til ‘Islands… erum sest uppí vél, og ég sest upp við gluggan en Davíð sat hinum megin við ganginn samt hliðiná skiljiði…ég er að góla eitthvað út um gluggann þegar ég sé að það er fólk að fara að setjast hliðiná mér …þetta voru svona þrjú sæti í röð … hurru…eitt stykki lítill feitur hvítur maður og eitt stykki þeldökk kona setjast hliðiná mér !!! What are the odds of that !!! Stend ennþá í þeirri trú að Guð hafi verið að refsa mér fyrir að opna munninn á almennafæri eftir atvikin í Noregi…
Strike nr 6…Aldrei að hafa opna hurðina á baðinu svo að krakkarnir komist inn á bað til ykkar!!! Sérstaklega þegar að þið konur eru að skipta um bindi og barnið spyr hvað þetta sé og til hvers og afhverju…ég svaraði því bara og spáði ekkert meir út í það…þurfti að fara í búðina sama dag og kaupa dömubindi og litla ungfrúin kom með..ég set pakkann af dömubindinu í körfuna og fer á afgreiðsluborðið…litla ungfrúin heimtaði að fá að setja vörurnar upp á borðið og ekkert mál með það nema þegar að sú litla segir ” MAMMA MÍN ER Á TÚR” í þeim mundum sem hún er að setja pakkann á afgreiðsluborðið…blóðþrýstingurinn minn hækkaði upp í 120/240 og fór allur upp í hausinn á mér þar sem ég stóð þarna eins og gullfallegt jólaepli sem var nýbúið að skola í vaskinum…vildi líka svo skemmtilega til að þetta var á háannatíma verslunnamanna kl 6 síðdegis…En ég hef nú passað mig á þessu undanfarin ár með því að hemja mig á einhverju sem mig langar að tjá mig um…svona er mar nú heppin…’A nú fleiri en er búin að termineita þeim forever úr huga mínum8)…En ætla ekki að hafa þetta lengra í bili …Muna svo að commenta endilega…hundleiðinlegt að skrifa eitthvað ef enginn nennir að segja svo eitthvað
Kærlig hilsen fra ‘Igilsstadir…![]()
16,12,07 at 4:04 pm
very interesting, but I don’t agree with you
Idetrorce
19,12,07 at 5:41 am
agree me on what ??? and why do you write in english if you can read icelandic ????